RUV - hver vann?

Horfði á Stjórnmálaþátt RUV nú í kvöld og hafði gaman af. Er reyndar löngu búin að ákveða hvað á að kjósa en ég verð að gefa þessum formönnum flokkanna mína umsögn.

Sigmundur Davíð: Ég hef trú á Sigmundi, mér finnst hann tala skýrt, það er ekkert blaður, hann heldur athygli minni alveg, og mig langar til að vita hans skoðanir á hlutnum, ég tek mark á þeim. Mér fannst hann komast vel frá þættinum...mér er í raun sama hvar hann fékk þessar upplýsingar..hvort þær komu frá Ólafi Ólafs eða ekki, þetta þurfti að koma fram.

Ástþór Magnússon: Full ákafur á köflum, samt í raun nauðsynlegt að fá hans innlegg í umræðuna þótt margt megi tína út sem hann segir. Mér finnst þessi markaðsskrifstofuhugmynd ekki svo arfavitlaus..sorry:)

Bjarni Ben: Komst ágætlega frá þættinum, stóð samt ekkert upp úr. Hann náði að svara vel fyrir sig, en það kom ekkert nýtt frá honum, þetta er í raun einhver varnarbarátta sem hann er að heyja, hann nær ekki að fara nógu sterkt í sóknargírinn að mínu mati. Vantar að hafa hann beittari, kenni um reynsluleysi...

Þór Saari: Kom ágætlega út, hefur þó ekki trúverðugar lausnir, samt væri ágætt að hann kæmist á þing held ég.

Jóhanna Sigurðardóttir: Við skulum hafa það í huga að konan er forsætisráðherra landsins. Sást það í þættinum?? NEI. Hún var hvorki fugl né fiskur, enginn eldmóður, enginn kraftur...ekkert! Ég fékk á tilfinninguna eins og hún hreinlega nennti ekki að vera þarna, og vá hvað hún þurfti að bauna mikið á Sjálfstæðisflokkinn! Mitt mat er að hún er ekki trúverðugur leiðtogi í þessum erfiðu aðstæðum sem þjóðin er í, hún hefur einfaldlega ekki þrek í baráttuna!

Steingrímur J: La la...hann fær prik fyrir að vera ákveðinn í ESB umræðunni, að hafa neitað aðildarviðræðum á nokkuð skýran hátt. En að hann sé að biðja menn um að vera rólega...og tala yfirvegað! halló!! hann hefur stuggað við Geir á þinginu...og er yfirleitt með puttann á lofti! Ég hef ekki trú á honum til að stýra skútunni í rétta átt, hann er of mikill framfarahemill til þess!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Velti fyrir mér afhverju bara SjáLfstæðisFLokkurinn átti fulltrúa í sérfræðingapanelnum hjá Agli Helga. Hélt að RÚV ætti að gera öllum framboðum jafnt undir höfði.

Bobbi (IP-tala skráð) 24.4.2009 kl. 23:21

2 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Athglisvert innlegg hjá þér, jú, mér fannst Jóhanna annsi dauf í dálkinn í kvöld og Skallagrímur virtist í vörn allann tímann, Ástþór átti spretti en eins og þú segir, fullákafur á stundum, en ég minni á að fyrir 15-20 árum voru stjórnmálaumræður í héruðum og á opinberum vettvangi mun ákafari en nú, menn í dag eru ansi settlegir í samanburði við það sem þá tíðkaðist

Mér fannst Sigmundur allst ekki þessi frelsandi engill eins og svo margir virðast líta á hann , er hreinlega ekki með á hreinu hvað ég hef þennann mann! Guðjón var eins og hann hefur alltaf verið, fastur í sínum kvótamálum og byggðarstefnu, sem ekki endilega er slæmt, hef ekkert álit á Þór Saar. Bjarni Ben fór á köflum í æsing við sessunauta sína, og kom mér það á óvart, þar sem ég hef talið hann rólyndismann að upplagi, en það eru jú engar smá upphæðir í boð í þessari rúllettu sem nú er að byrja að snúast. 

Guðmundur Júlíusson, 24.4.2009 kl. 23:36

3 Smámynd: Brattur

Mér fannst mesta blaðrið vera í Sigmundi Davíð... kom berlega í ljós hvað hann er reynslulaus... ætlaði að varpa bombu en var sleginn niður af Ástþóri Magnússyni af öllum mönnum!

Bjarni Ben. er alltaf með fýlusvip og ekki gaman að hlusta á hann.

Mér fannst Þór Saari ágætur... en Guðjón Arnar slappur.

Steingrímur J. og Jóhanna báru af, reynsla þeirra og þekking var áberandi.

Brattur, 25.4.2009 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband