Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Ekki kom hann vel fyrir..

..hann Þráinn þegar hann svaraði Þorgerði Katrínu.

Málið er að hann er að koma á þing akkúrat vegna andstöðu hans flokks til svona mála. Nú er 18 þús manns án atvinnu, ætlar hann virkilega að vera á tvöföldum launum á þessum tímum. Þarf hann yfir höfuð eitthvað að hugsa sig um??


mbl.is Þráinn íhugar heiðurslaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RUV - hver vann?

Horfði á Stjórnmálaþátt RUV nú í kvöld og hafði gaman af. Er reyndar löngu búin að ákveða hvað á að kjósa en ég verð að gefa þessum formönnum flokkanna mína umsögn.

Sigmundur Davíð: Ég hef trú á Sigmundi, mér finnst hann tala skýrt, það er ekkert blaður, hann heldur athygli minni alveg, og mig langar til að vita hans skoðanir á hlutnum, ég tek mark á þeim. Mér fannst hann komast vel frá þættinum...mér er í raun sama hvar hann fékk þessar upplýsingar..hvort þær komu frá Ólafi Ólafs eða ekki, þetta þurfti að koma fram.

Ástþór Magnússon: Full ákafur á köflum, samt í raun nauðsynlegt að fá hans innlegg í umræðuna þótt margt megi tína út sem hann segir. Mér finnst þessi markaðsskrifstofuhugmynd ekki svo arfavitlaus..sorry:)

Bjarni Ben: Komst ágætlega frá þættinum, stóð samt ekkert upp úr. Hann náði að svara vel fyrir sig, en það kom ekkert nýtt frá honum, þetta er í raun einhver varnarbarátta sem hann er að heyja, hann nær ekki að fara nógu sterkt í sóknargírinn að mínu mati. Vantar að hafa hann beittari, kenni um reynsluleysi...

Þór Saari: Kom ágætlega út, hefur þó ekki trúverðugar lausnir, samt væri ágætt að hann kæmist á þing held ég.

Jóhanna Sigurðardóttir: Við skulum hafa það í huga að konan er forsætisráðherra landsins. Sást það í þættinum?? NEI. Hún var hvorki fugl né fiskur, enginn eldmóður, enginn kraftur...ekkert! Ég fékk á tilfinninguna eins og hún hreinlega nennti ekki að vera þarna, og vá hvað hún þurfti að bauna mikið á Sjálfstæðisflokkinn! Mitt mat er að hún er ekki trúverðugur leiðtogi í þessum erfiðu aðstæðum sem þjóðin er í, hún hefur einfaldlega ekki þrek í baráttuna!

Steingrímur J: La la...hann fær prik fyrir að vera ákveðinn í ESB umræðunni, að hafa neitað aðildarviðræðum á nokkuð skýran hátt. En að hann sé að biðja menn um að vera rólega...og tala yfirvegað! halló!! hann hefur stuggað við Geir á þinginu...og er yfirleitt með puttann á lofti! Ég hef ekki trú á honum til að stýra skútunni í rétta átt, hann er of mikill framfarahemill til þess!


Skylda Fjármálaráðherra..

Það er algjör skylda Fjármálaráðherra að svara Sigmundi, og ekki seinna en á morgun.

Þetta eru alvarlegar túlkanir sem kjósendur eru að fá 2 dögum fyrir mikilvægustu kosningar í sögu lýðveldisins. Þeim verður að svara og af þeim sem hafa upplýsingar til þess...sem er einmitt Steingrímur J.

Ég krefst þess sem kjósandi að fá málefnalegt svar frá Steingrími á morgun, því mín tilfinning fyrir Sigmundi er sú, að þetta er heiðarlegur einstaklingur sem virkilega ber hag þjóðarinnar fyrir brjósti, og því tek ég mark á þessari túlkun hans, og það alvarlega.


mbl.is Sigmundur Davíð spáir öðru hruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningabarátta Sjálfstæðisflokksins...

Hvað getur maður sagt?

Það er engin kosningabarátta..gjörsamlega engin!!

Í fyrsta lagi fær Steingrímur J algjörlega að vaða uppi í hverju viðtalinu á fætur öðru, bendandi í allar áttir og kemur því að við hvert einasta tækifæri, að núverandi stjórn sé að taka við 150 milljarða halla á ríkissjóði í boði Sjálfstæðisflokkins. Og enginn svarar þessu!!! Hvar eru Sjálfstæðismenn??
Hvað með gríðarlega uppbyggingu á bæði heilbrigðis-og menntamálum þjóðarinnar undanfarin 18 ár? Hvað með að ríkissjóður var skuldlaus áður en bankarnir hrundu? Skiptir þetta engu máli? Af hverju er manninum ekki svarað eitthvað á þessa leið???? Fyrirgefið, ég skil þetta ekki.

Síðan er það kosningabaráttan sjálf.
Byrjum á Landsfundinum. Hvað kom út úr honum? Jú tilkynnt var skýrsla Endurreisnarnefndarinnar..og hver var niðurstaða þeirrar skýrslu? Jú, m.a. að fara ætti í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Og var það síðan ekki fellt á fundinum sjálfum?? Og hvað meir?
Hver er grunnurinn eftir þennan landsfund sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að byggja framtíð flokksins á? Það er engin grunnur...engin endurnýjun ( fyrir utan formann)...EKKERT.

Kosningabaráttan þessa síðustu daga er ekki neitt neitt...ekki er skýr stefna, engar afgerandi lausnir, enginn kraftur...ekkert!

Hvar eru forystumenn flokksins...hvar er Þorgerður Katrín, hún hefur ekki sést í margar vikur...ekki múkk heyrst í henni.
Bjarni Ben kemur ekki nógu sterkur sem nýr formaður flokksins, því miður. Ég vil kenna um reynsluleysi sem og gríðarlega erfiðar aðstæður sem maðurinn þarf að díla við hvern dag.

Ég er sjálfstæðiskona. En ég veit ekki hvað ég geri á kjördag. Það verður að koma í ljós.....


Staða Sjálfstæðisflokksins

Hún er ekki góð. Hún er reyndar hrikalega slæm.

Fréttir undanfarinna daga hefur farið illa í almenning og væntanlega enn verr í stuðningsmenn og flokksmenn Sjálfstæðisflokksins. Fólki finnst það svikið. Eðlilega! Að hafa fært þessa tvo risastyrki inn í bókhald flokksins er með öllu óásættanlegt.

Einhverjir bera ábyrgð, klárlega. En hafa allir þeir sem komu að málinu borið ábyrgð? Og dugar það til einhvers? Jú það hreinsar að einhverju leyti andrúmsloftið..en skaðinn er skeður, hann skeði fyrir 2 árum síðan og er að koma í ljós núna. Geir Haarde, sem er erlendis í sjúkrameðferð, hefur gefið frá sér yfirlýsingu og með því axlað sína ábyrgð. Ég veit ekki hvar í veröldinni Geir hefur verið þegar hann ákvað að samþykkja þessa styrki og gefa leyfi fyrir því að þeir yrðu notaðir í þágu flokksins. Af hverju ákvað hann að samþykkja styrkina? Fannst honum þetta eðlilegir styrkir og eðlilegt að samþykkja þá? .....ég bíð spennt eftir að heyra hvað hann hefur að segja um þetta mál.

Andi Óttarsson hefur sagt af sér. Hann hefur axlað ábyrgð.
Guðlaugur Þór er klárlega viðriðinn þetta mál að einhverju leyti, hann er stórskaddaður stjórnmálamaður eftir þetta, og mun þetta atvik fylgja honum um ókomna tíð. Hann hefur gert grein fyrir aðkomu sinni að málinu, ég held að fáir styðji hann eftir þetta og verður fróðlegt að sjá kostningatölur úr hans kjördæmi í komandi kostningum.

Þá standa eftir Þorsteinn Jónsson og Steinþór Gunnarsson. Menn sem hafa unnið lengi í flokknum, eru harðir stuðningsmenn Guðlaugs og vildu hjálpa til við fjáröflun.
Hvað gerðu þeir? Fóru þeir til fyrirtækjanna og sögðu: Getið þið styrkt Sjálfstæðisflokkinn um dágóða fjárhæð, hann er í alvarlegum fjárhagskröggum?
Og hvert var svarið ??? "Já endilega hreint....best að láta ykkur fá 30 mkr, ekkert mál!"

Málið klárast ekki fyrr en útskýrt verður, af hverju styrkirnir voru svona gríðarlega háir??? Og tímasetningin er vægast sagt undarleg, það þarf einnig að skýra hana út.

Svo þessu máli er ekki lokið, ég vona að fréttamenn leiði þetta til lykta. Ég get ekki með góðu móti sett X við D í komandi kostningum ef málinu verður lokað á þennan hátt.


Hvaða skrípaleikur er þetta?

Sjálfstæðisflokkurinn var nú ekki sterkur nú rétt fyrir kostningar...en eftir þessa uppákomu með styrki frá FL group og Landsbankanum, er flokkurinn í enn verri málum.

Til þess að kóróna svo skandalinn...ég vil kalla þetta klárlega skandal...þá er hver höndin upp á móti annari í að skýra út hvernig stóð á því að flokkurinn fékk þessar risafjárhæðir.

Geir með sína yfirlýsingu..well..hef ekki trú á að nokkur einasti maður trúi henni. Síðan er nafn Guðlaugs Þórs dregið inn í málið..og hér er komin yfirlýsing frá honum.

Hver segir satt? Hver lýgur? Fólk er alveg búið að fá nóg af lygum og spillingu...auðvitað er þetta mjög óheppilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að þetta sé að koma upp núna, svona rétt fyrir kostningar. En svona er staðan.

Ég spái Sjálfstæðisflokknum all svakalegri útreið í komandi kostningum. Því miður:(


mbl.is Guðlaugur Þór: Ég óskaði ekki eftir styrk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég trúi Bjarna Ben

Bjarni Ben er ekki í öfundsverði aðstöðu. Ég trúi því að hann hafi ekkert vitað um þessa styrki og það sé hans einlægur vilji að skila þeim tilbaka, enda eru fjárhæðirnar að mínu mati mjög óeðlilegar.

Því miður held ég að þetta skýri myndina aðeins...þ.e. að stjórnmál séu ekki undanskilin spillingunni sem hefur verið í gangi undanfarin ár. Því miður.

Einnig er ég í nettu sjokki yfir yfirlýsingu Geirs..ég hef hingað til talið hann strangheiðarlegan og einlægan mann. Því miður er þessi yfirlýsing hans ekki trúverðug á nokkurn hátt.

Nú er spurning hvað kemur næst upp, þetta er ekki búið.


mbl.is Skilað til lögaðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er með ólíkindum..

Að Íslendingar hafi ENN ekki hugmynd um af hverju Ísland var sett á hryðjuverkalista Breta.

Er þetta ekki með hreinum ólíkindum? Trúir maður þessu?? Ég geri það varla. Mín tilfinning er sú að sumir embættismenn viti nákvæmlega af hverju landið var sett á þennan lista....en vilja ekki deila því með þjóðinni.

Það er allaveganna alveg klárt mál, að ef forsætisráðherra, fjármálaráðherra ofl væru svo vissir í sinni sök að ekkert saknæmt hafi gerst í aðdraganda þess að Bretar gripu til þessa ráðs...væru þeir þá ekki löngu löngu búnir að fá einhverjar almennilegar skýringar á þessu? ..og væntanlega í framhaldinu leiðrétta þetta við þjóðina sjálfa?

Þetta er bara óskiljanlegt. Og nú ætlar Alþingi að ræða um þessa bresku skýrslu...til hvers????


mbl.is Ræða skýrslu Breta á mánudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er bara tvennt sem ég hef um þetta að segja..

Arnór Sighvatsson, nei takk.

Einfaldlega vegna þess að ef fólk vill endurnýjun á stefnu og stjórn bankans, þá hefur hann verið of involveraður í það sem hefur verið gert hingað til.

 Þorvaldur Gylfason, nei takk.

Einfaldlega vegna þess að mér hefur aldrei líka hvernig hann hefur komið sínum skoðunum, sem fræðimaður, á framfæri á mjög svo pólitískan hátt!

Þetta er mín skoðun.

 


mbl.is Fimmtán sóttu um stöðu seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband